08.08.2007 19:36:59 / neglur

Hætt tímabundið!

Er hætt að setja neglur í óákveðin tíma! 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 15:52:12 / neglur

Hæ hæ

Er með alþjóðadiploma frá La Fame í Þýskalandi. Er að gera gelneglur á fingur og tær. Ég er með fína aðstöðu og er alltaf með heitt á könnunni! 

Var að vinna á vinsælli stofu við að gera neglur þannig að ég er með góða þjálfun!

Ég nota efnið vinsæla frá LCN. Gagnlegar upplýsingar eða svör við algengum spurningum eru neðst á síðunni. Er í Kópavoginum.

 

 

 

Netfang: huldagu@visir.is

Sími: 8600342

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 15:49:46 / neglur

Verð:

Gelneglur án French Manicure: 4.000 kr.
Gelneglur með French Manicure: 4.500 kr.
Lagfæring án French Manicure: 3.500 kr.
Lagfæring með French Manicure: 4.000 kr.
Stök nögl með lagfæringu: 0 kr.
Styrking á eigin neglur án French Manicure: 3.500 kr.
Styrking á eigin neglur með French Manicure:  4.000 kr.
Stök nögl með eða án French Manicure:

500 kr.

Gel á táneglur með French Manicure: 3.500 kr.
Skraut á eina nögl: 250 kr.
Neglur teknar af: 2.500 kr.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 15:47:36 / neglur

Gagnlegar upplýsingar:

French Manicure er ljósa línan fremst á nöglinni. Við ásetningu á gelneglum er ég með þrjá liti af French manicure, náttúrulegan french, milli hvítan og skjanna hvítan french. Einnig er hægt að sleppa því að setja línuna, sjá verð hér fyrir ofan.

Lagfæring er oftast gerð á þriggja til fjögra vikna fresti. Fer eftir hverjum og einum. Þá er hefur gelið vaxið fram með nöglinni og skilin orðin nokkuð áberandi. Einnig getur verið komið loft undir gelið.

Ég er 1½ – 2  tíma að setja gelneglurnar á fer eftir hverjum og einum viðskiptavini. Sá tími gildir einnig um lagfæringu.

Ég er rúmlega 30 mínútur að setja gel á táneglur. Ég set ekki framlengingu á táneglur, sett er French manicure á neglurnar og svo gel yfir.

Þegar ég tek gelneglur af þá pússa ég gelið niður. Það fer illa með neglurnar að rífa gelið af. Algengt er að partur af efsta naglalaginu fari af nöglinni sjálfri þegar gelið er rifið af. Einnig set ég olíu, næringu og naglalakk. Snyrti naglaböndin og pússa nöglina til.

Gott er að eiga olíu á naglaböndin, glært naglalakk og þjöl ef maður er með gelneglur. Gott er að setja naglalakk yfir neglurnar þegar gelið hefur vaxið fram með nöglinni, til þess að fela skilin. 


» 1 hafa sagt sína skoðun